Klobbarnir....

....allt sem þig dreymir um

24.12.2008 21:56:53 / rebekkalif

Hátíðar kveðjur

Gleðileg jól allir saman.
Hafiði það sem allra best yfir hátíðarnar og sjáumst hress á komandi ári.
Rebekka Líf Karlsdóttir
Dagný Ýr Kristjánsdóttir
Lilja Björk Friðbergsdóttir
Hólmfríður Magnúsdóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 16:57:05 / rebekkalif

Afmæli

Elskuleg frænka mín hún Áslaug Katrín er 19 ára í dag.
Vildi ég óska henni til lukku með áfangan og vona að hún hafi/eigi góðan dag:)
Sé þig eftir rúmar tvær vikur kærlighed;)


Áslaug í 17 ára afmælinu sinu


Skvísan í 18 ára gleðinni.:)

Veit ey hvernig hun er í dag..

Elska þig sæta mín!:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 16:13:15 / rebekkalif

2 nóv

Það er strax kominn 2.nóvember sem þýðir að það eru aðeins 4 vikur eftir að skólanum og 28 dagar í 19 ára afmælið mitt. Ég fer í lokapróf í næringafræði þann 1 des og svo próf í kvikmyndasögu þann 2 des og þá hef ég lokið menntaskólagöngu minni. þann 3 des fer ég síðan verstur og veit ekki hversu lengi ég stoppa þar því ég er komin með vinnu þar allaveganna út miðjan janúar og get öruglega fengið áframhaldandi vinnu þar efa ég vill.. Vandamálið er að ég veit ekkert hvað ég vill, ég vill spennu, nýjungar, peninga, gleði og mikið af henni, útlönd, ísland, hitt og þetta..
Það er pínuponsu sorglegt að hugsa til þess að menntaskólaárin mín séu nánast liðinn, því þá tekur háskólanám við og ég hef ekki grænan um hvað ég vill þar, samt hefur félagsfræðin og fötlunarfræðin heillað smá..
Dagarnir mínir núna fara í það að læra í skólanum, boot camp, læra heima, horfa á TV, þvo þvottinn og reyna halda heimilinu hreinu, reyna fá e-rn tíma með Tomma en svona háskólafólk hefur því miður ekki mikinn tíma aflögu en þó alltaf e-ð:)
Jólin nálgast, ég hef ekki gert jóla innkaupinn, hvað þá skrifað niður lista með jólagjöfum..Þetta reddast allt saman og nægur tími til þess..
Ég á því miður ekki neitt brakandi ferskt í bokahorninu en þið getið þó farið inn á www.123.is/hofiinmexico og www.123.is/liljabjork þar má finna skemmtilegheit:)
Ætla að enda þetta með nokkrum myndum af velvöldum einstaklingum sem ég sakna svo ógurlega mikið...!

Sakna þín Elísabet og get varla beðið eftir að hitta þig í des..
  

Sakna ykkar allra

Luvs;*

Elska ykkur svo ótrúrlega mikið!!!

Mínar elskulegur systur!


EN það er nú oft glatt á hjalla hjá íbúum Bólstaðarhlíðar


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 21:59:43 / rebekkalif

Gömlu góðu tímanna gefðu mér...

 

Já hver rifjar ekki upp gömlu góðu tímanna? Nú tala ég eins og elli ær kona á grafarbakkanum en mér verður stundum hugsað til þess tíma þegar við stelpurnar hófum göngu okkar í Menntaskólanum á Ísafirði. Allar feimnar og rétt að byrja kynnast.. Það var svo gaman þegar hópurinn okkar myndaðist. Strax á mánudögum vorum við farnar að plana djamm fyrir komandi helgi og efa ekki var búið að redda því um miðja vikunna fór maður næstum því í kvíðakast yfir því að það yrði ekkert djamm!

Ég sakna þessara tíma því þó við höfum ekki náð nema 19 ára aldri þá erum við allar komnar þvers og kruss um landið, farnar til útland,  komnar með kæró og/eða börn.. Sem er reyndar allt í því fína því þetta gefur til kynna að við erum allar að fullorðnast, þó svo leiðinlegt sé að viðurkenna það! Lít reyndar björtum augum til framtíðarinnar, sé okkur alveg fyrir mér kíkja á kæjann og næla okkur í eitt ferkst kjöt eða svo..;)

Að nútíðinni. Stelpurnar ( Lilja, Hólmfríður og Steinunn) Eru í útlandi að reyna öðlast frægð og frama, eða svo hefur manni verið sagt. Lilja og Steina eru í hinu um talaða lúx-landi, ég veit ey hvað þær eru að bralla þar en fæ að kynnast þessu öllu saman frá 8-13 okt því þá ætlum við Salóme og Vala að skella okkur í ,,fullorðinskonuferð'' til þeirra.
Hólmfríður er auðvitað enn í landi takkó og burrító, Mexico þ.e.a.s. Henni líkar þar vel og hefur komið sér vel fyrir í hópi góðs fólks, eða það vill hún allaveganna meina:)
Staðan er þá bara sú að við Dagný erum á fróninu meðan þær soga í sig alls kyns fróðleiks sem ekki má finna í skólabókunum.. Hver veit nema við leitum á vit ævintýra einn daginn. Já ég sagði einn daginn!!


Læt nokkrar og vel valdnar myndir fylga;)


Ég og Lilja heima hjá Lenu ásamt gærunni...



Lilja og Hólmfríður á skrallinu 2005


Já kellingin skrallaði aðeins of mikið!

Holtabrún 4 var hús hlátursins og drykkju...

Á 16 ára afmælinu mínu..

Magga, ég og Lena. (teiti hjá möggu 2006, endaði með einum of mikilli drykkju, hjá mér!)

Kveðjuteiti Helgu G sumarið 2006 i think...


Herdís og Lára í kveðjuteiti hjá mér á Vaxon


Patí og magga líka:)

Dagný á leiðinni á djammið haustið 2005


Hófí staulaðist með henni, en endaði nú ekki eins vel;) hahah


Þá kveð ég í bili með gleði og tár yfir þessum myndum.
Rebekka Líf Karlsdóttir, ex djammari...


Haha trúi varla að ég hafi sett þessa, en okei!
Njótið!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 17:08:10 / rebekkalif

Smá frá sumrinu.

Já þá er sumarið búið og skólinn byrjaður. Sumarið var yndislegt í næstum alla staði, ótrúlegt hvað það er alltof fljótt að líða. Ætla að rifja smá upp.
Eftir skólann í vor fór ég vestur og vann sem stuðningsfulltrúi, vann e-ð í bakkavík og hjá pabba. Skráði mig í fjarnám í leikfimi og sundi og því alltaf ástæða fyrir því að skundast í ræktina..
Við fluttum einnig í nýtt hús eftir að hafa búið í því gamla í rúm 14 ár, og get ég í hreinskilni sagt að það er ömurlegt að flytja! Allt vesenið sem fylgir því t.d. mála, pakka niður, flytja dótið og koma sér fyrir. Það var líka kíkt smá á djammið, þó ekki eins mikið og í den en samt meira en ég átti von á.
Önnur viðbótin á árinu leit dagsins ljós 18.júlí og er pían alger gullmoli og verður maður að standa sig vel í guðmóðurhlutverkinu.
EN aðaltoppurinn á sumrinu var auðvitað útskriftarferð Menntaskólans á Ísafirði til Costa del sol 31.júlí - 14.ágúst.. Ótrúlegt að ferðin sem maður hefur beðið eftir alla menntaskólagönguna sé búin en hún var frábær..
En eins og ég sagði þá er skólinn byrjaður og er ég i 21 einingu og klára því um jólin en útskrifast frá MÍ vorið 09. Sumum finnst það kannski spes en ég gæti ekki hugsað mér að eyða útskriftardeginum frá vinum og fjölskildunni fyrir vestan.:)
Annars er frá fáu að segja nema Hófí og Lilja eru farnar út og heilsast þeim báðum vel eftir því sem ég best veit. Ekkert smá skrítið að þær séu farnar enda höfum við verið vinkonur frá því í grunnskóla. En þetta ævintýri verður bara gaman og hver veit nema maður skelli sér í eitt slíkt eftir áramót.
En ætla nú ekki að hafa þetta lengra, vildi bara láta vita af mér. Læt nokkrar myndir frá sumrinu fylgja..
Blessó:)

Hress fyrir ball með Eurobandinu


Ég og sambýlismenn mínir eftir OF mikla drykkju..;)


Ég og gamli maðurinn á Costa

Flipp á costa...


Og enda á þessari af okkur Elsu, en með henni eyddi ég öllu sumrinu fyrir vestan og var það frábært!:)

» 10 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 18:13:11 / hofimagg

eintóm gleði, stress og hamingja!!

er að fara út eftir 3 daga.. var að búa mér til blogg www.123.is/hofiinmexico

verið dugleg að fylgjast með mér og skrifa komment hjá mér;)

lilja var líka að fá sér síðu fyrir lúx www.123.is/liljabjork


see yah laaateeer!!:D:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 11:12:10 / liljabjork

28 dagar!

Jæja, fannst vera kominn tími á nýtt blogg!:)

Það er allt fínt að frétta af mér, kíkti vestur fyrstu helgina í júlí líf og fjör í Bolungarvík og veðrið æðislegt.

Ég byrjaði í nýrri vinnu, vinn semsagt á Landspítalanum við Hringbraut, mjög skemmtileg vinna, og yndislegt fólk sem eru að vinna með mér.

Ég ákvað ekki fyrir svo löngu síðan að skella mér út sem aupair til Luxemborg og vera þar allavega fram að jólum, varð svo ótrúlega heppin að fá Steinu og Helgu með mér í þetta ævintýri. Ferðalagið hefst þann 28 Ágúst.

Við Bjarnþór kíktum ásamt fjölskyldu minni á lítið "ættarmót" aðra helgina í Júlí á Snæfellsnes, ég skemmti mér rosa vel annað en Bjarnþór, að hans sögn á ég mjög furðulega fjölskyldu!

Um Verlunarmannahelgina verð ég að vinna, frekar fúlt, gæti alveg hugsað mér að fara vestur eða e-ð en ég verð að vinna 12 tíma föst,laug,sun,mán og þrið.

Ég hætti sennilega að vinna 17 ágúst, þá ætla ég að fara vestur og líklega í husbílaferðalag með mömmu og pabba, og keyri svo með þeim suður áður en ég fer út. spennandi.!!

Ég hugsa að ég hafi þetta ekki lengra, skemmtið ykkur vel um Verslunarmannahelgina og þið sem eruð að fara til Costa del sol farið varlega.

-Lilja Björk.




» 1 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 22:17:48 / hofimagg

myndir myndir

var að setja inn myndir... farið þarna í myndasöfn í aðalvalmynd og albúmið heitir "gamalt og nýtt"

Liljumyndir001.jpg picture by Hofim
hittumst klobbarnir heima hjá mér eitt kvöld fyrir löngu

Liljumyndir038.jpg picture by Hofim
ég fimleikadrottning í costa del nauthólsvík

Liljumyndir053.jpg picture by Hofim
"Fríða" og dýrin

Liljumyndir138.jpg picture by Hofim
fyrsta helgin í júlí

Liljumyndir151.jpg picture by Hofim
Litla Hófí

Liljumyndir153.jpg picture by Hofim
lenti svo í rigningu í bænum í dag!!

Njótið... -HM

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 13:26:47 / hofimagg

....

hver vill koma með mér og fá sér tattoo?

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 17:29:52 / hofimagg

jææææææja!

er hérna á vaktinni í vinnunni og fannst algjörlega tilvalið að blogga...

lenti í smá misskilningi í vinnunni um daginn við eina konu sem hringdi á Hg

konan (sem var btw mjöööög gömul): já góðan daginn, elínborg er hún ennþá í fríi?
ég: já hún kemur ekki fyrr en í endaðan júlí, en ég get gefið þér tíma hjá öðrum lækni ef þú vilt það?
konan: jáá er það? og hvernig læknar eru það? allt útlendir?
ég: ha? (hvaða rasisti er manneskjan??) hvað segiru?
konan: fæ ég þá bara tíma hjá útlendum?
ég: nei það eru nú bara íslenskir læknar að vinna hér hjá okkur
konan: HA?? hvað segiru??
ég: *endurtek mig*.. fyrirgefðu hvað sagðiru?
konan: eru þetta allt UNGLÆKNAR sem ég get fengið tíma hjá?

HAHA ... smáá misskilningur þarna!

annars er bara allt gott að frétta... komin dagsetning á "flutninga" 22. ágúst mun ég yfirgefa klakann.. komið pínu stress í mig, er alltaf að heyra hryllingssögur sem eru að koma fyrir fólk þarna úti, en að sjálfsögðu líka fyndnar og skemmtilegar.

en það sem er að frétta af okkur vinkonunum er bara mest lítið

Dagný týnd, alltaf að vinna, með nýju vinunum eða kæró;) hún var allavega að kaupa sér nýjan bíl í gær!
Rebekka var að flytja í nýtt hús, á götu sem ég og Lilja mundum ekki hvað hún hét? hjallastræti? svo er hún að fara í útskriftarferðina bar aí júlí held ég?
Lilja er að fara sem au pair til lúxembourg í ágúst
og ég að flytja til mexico..

eigiði góða daga

kossar og knús

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 13:11:09 / hofimagg

uno cervesa por favor!

er að fara að stofna mér nýja síðu.. til að vera með úti.. með hverju mæliði?

bloggar.is?
blog.central.is? (er ekki mjög spennt)
123.is?

eðaaaa???


hjálpiði mér nú góða fólk:)

-HM

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 15:47:11 / rebekkalif

Bolungarvík

Lífið  er svo óútreiknanlegt að það hálfa væri nóg. En það er allt sæmilegt að frétta héðan, pabbi kemur líklegast heim á föstudaginn þá eftir næstum vikudvöl á sjúkró í höfuðborginni. Það fundust tveir blóðtappar og e-ð vesen en kallinn er sprækur sem lækur:)
Mörgum finnst kannski ömurlegt að búa í e-um smá bæ úti á landi, eða geta ef til vill ekki einu sinni hugsað sér að búa þar, en vitið hvað, ég elska það! Ég hef reyndar alltaf verið stolt af því að koma frá Bolungarvík en aldrei eins og nú. Eftir að sá gamli veiktist hafa svo margir boðið fram hjálp sína og þeir eru nú ekki fáir sem hafa hjálpað okkur á fiskmarkaðnum eða sýnt stuðning á e-rn hátt og því ég vill nota tækifærið og þakka öllum kærlega fyrir;*:)

En yfir í e-ð allt annað. Sumarið er svo heldur betur komið, sól og hiti en þó ekki í dag. Það styttist alltaf í útskriftarferðinna hjá okkur 3 bekk frá Menntaskólanum á Ísafirði, minna en 2 mánuðir í 2 vikna djamm/sólar ferð til Costa del Sol. Þetta er föngulegur hópur og vonandi verður þetta allt saman dásamlegt.
En held að ég fari að slútta þessu og læt því nokkrar myndir fylgja frá skírn Tómasar Andra Guðmundssonar, syni Brynju Ruthar syss.. Hann er auðvitað algert augnarkonfekt og getur maður ekki tekið augun af þessum dreng. Síðan styttist alltaf í hitt krílið:)

Litla fjölskyldan ásamt prestinum

Afinn, mamman og Tómas

Ég og nafnarnir:)

Og sá gamli með afabörnin sín

Rebekka Líf Karlsdóttir

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 17:20:12 / hofimagg

hermosa la vida!

ljúfa líf!

hversu ljúft getur lífið verið! þótt að ég sé hálf lasin og eigi 2 próf eftir (2 sjúkrapróf á mánudaginn) þá er ég svo sátt og ánægð með lífið.. sumarið er að koma, frábært veður, allir kátir og glaðir...

sumarið mitt á eftir að einkennast af vinnu, vinnu og vinnu.. og já viku til spánar og til mexico í ágúst...

var að ganga frá því bara núna rétt í þessu, ég og heiða frænka...
við ætluðum semsagt að fara saman til mexico sem sjálfboðaliðar í ár, erum búnar að vera á fullu að gera framhaldsumsóknina, fylgibréf, ferilskrá og afla okkur upplýsinga um mexico, eins og að skoða google earth! svo fórum við í dag klukkan hálf 4 í viðtal, fá að vita meira um þetta og fara með ljósrit af vegabréfunum okkar til þeirra. þá er okkur sagt að við komumst ekki báðar til mexico, shit!


en við brjálæðislega jákvæðar og hressar píur leistum þetta bara þannig að ég fer til mexico og hún til honduras... hversu gaman!! ætlum síðan bara að heimsækja hvor aðra þegar við fáum frí, kynnast nýju fólki og menningu...


já ég er allavega að fara að yfirgefa klakann í ár!! vúhúhúúu stanslaus sól, gleði og hamingja og suuuumar í ár!
veit ekki með ykkur en ég er að tapa mér í gleði og spenning!!


~Mexicofarinn!


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 21:33:02 / hofimagg

próf próf próf

djísus, ég á 4 próf eftir.. er ekki búin fyrr en 15. maí... er abra ekki þessi prófatýpa skilur...

 

ég fór í dag með mömmu og kláraði að kaupa allt fyrir ferðina okkar...

*cintamani gönguskó, ótrúlega stórir, vissi ekki að gönguskór þyrftu að vera meira en númeri of stórir á mann!
*2 pör af göngusokkum
*svona buff í hárið, því rótin mín verður orðin verulega mikil þegar við förum út því ég ætla ekki í litum fyrr en við komum heim.. að spara þið skiljið;)

en já við erum semsagt að fara í gönguferð um Pýraneafjöllin á Spáni í viku, við mæðgurnar... tók kerlinguna í nösina þegar við löbbuðum uppá Helgarfell um daginn, var komin langt á undan henni upp:klikk:

ætlum síðan að labba uppá Esjuna einu sinni í viku í sumar, bara hressandi og skemmtilegt...

mig langaði bara til að blogga því ég er að læra þið vitið;)

~HM


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 15:50:06 / rebekkalif

Sumarið er tíminn

Núna á maður að vera læra en ég er ekki alveg að meika það svo þá er um að gera að nota tímann og drita inn nokkrum sporum hérna.
  • Ekki margt hefur borið upp á daga mína en þó e-ð.. Litli prinsinn hjá Brynju og Gumma dafnar vel og er hann bráðmyndarlegur drengur.
  • Litla hennar Jónínu var skírð á sl laugardag og fékk hún fallega nafnið Embla Náttól.
  • Prófin að byrja hjá mér á morgun og svo 9,13 og 15 maí.
  • Bolungarvíkin fagra þann 15 maí-30 júlí
  • Sjómannadagsball 31 maí
  • Markaðshelgin + bekkjarhittingur vonandi fyrstu helgina
  • í júlí
  • Costa del Sol útskriftaferð 31 júlí - 14.ágúst
  • Rvk og undirbúningur fyrir skólann.

Já sumarið er komið og heimþráin orðin mjög mikil. Get ekki beðið eftir að komast heim til mín, eyða tíma með fjölskyldunni, njóta alls þess sem bolungarvíkin hefur upp á að bjóða( sumir hugsa e.t.v. hvað það sé nú) en það er svo margt. Maður á auðvitað eftir að sakna gellanna hérna í bænum en maður getur ekki verið allt í öllu. Mér finnst um að gera að koma heim og vinna á meðan maður hefur vinnu og ekki komin með e-ð barnavesen og svona! En ég held að ég fari að læra áfram undir stjórnmálafræði. Hafiði það sem allra best og gleðilegt sumar:)

Ég og Snævar Sölvi í góðum fíling sl föstudagskvöld. 


Og já efa þið hafið ekki tekið eftir því, þá er ég vængefin með víni..

Rebekka Líf Karlsdóttir:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 35
Fegrunarráð